Verðbréfadrengurinn
Halldóra Ársælsdóttir fædd 1992 lenti í fyrsta sæti í fyrstu ljóðaslammskeppni Borgarbókasafns sem haldin var á opnunarkvöldi Vetrarhátíðar fimmtudaginn 7. febrúar 2008.
Verðbréfadrengurinn.
Vextirnir fara hækkandi.
Bónusinn farinn fjandans til.
Vaxtamörðurinn seldi Hummerinn.
Hlutabréfin fallandi, svekkjandi.
Verðbréfasnáðinn.
Bankinn tók flatskjáinn.
Konan fór með börnin.
Stakk af til tengdamömmu.
Missti vinnuna, bömmer.
Verðbréfaguttinn.
Visakortinu lokað.
Alltaf í vanskilum.
Ekkert varð úr skíðaferðinni til Colorado.
Jólin náðu botninum, svekkjandi.
Verðbréfapeyinn.
Krónan er fallin.
Bankarnir þora ekki að lána meir.
Verðbólgan étur húsin.
Jólagleðin alveg gleymd, niðurdrepandi.






